Meistaramánuður 2014 - Markmið
Ég tók þátt í Meistaramánuði 2012 og 2013. Það er mikil stemning fyrir þessum mánuði í vinnunni (sérstaklega þar sem einn af þeim sem eru bakvið Meistaramánuð vinnur þar).
Það sem ég ætla að stefna að núna í október 2014:
Líkamsrækt a.m.k. 3x í viku
Hugleiða a.m.k. 3x í viku
Koma út a.m.k. einni bloggfærslu á Loro (hugsanlega með Birnu)
Ég mæti yfirleitt í vinnuna fyrir kl. 9, þannig að ég þarf ekki að setja mér það sem markmið í ár eins og hin árin :)
Ég nota tannþráð eiginlega daglega, þannig að ég þarf ekki að setja mér það sem markmið í ár eins og hin árin :)
Síðastu tvö ár hef ég verið að halda fyrirlestra í október. Núna verð ég með Google Analytics námskeið hjá Endurmenntun HÍ. Þar sem undirbúningur fyrir það tekur nokkurn tíma þá hefur það smá áhrif á að ég ætla ekki að vera með fleiri markmið í ár. Það er líka gott að hafa þetta einfalt og hafa ekki of háleit markmið - lærði það fyrst þegar ég tók þátt ;)

















