Liqurice Star Fall cocktail #matarkjallarinn #foodcellar #reykjavik #iceland #cocktail #drinks #liquricestarfall #travel #dinner (at Matarkjallarinn)
seen from United States

seen from Australia
seen from United States

seen from Malaysia

seen from United Kingdom

seen from United States
seen from United States
seen from China
seen from United Kingdom
seen from United Kingdom
seen from Canada
seen from United Kingdom
seen from United States
seen from China

seen from United Arab Emirates

seen from Singapore
seen from Russia

seen from Malaysia

seen from Malaysia

seen from Germany
Liqurice Star Fall cocktail #matarkjallarinn #foodcellar #reykjavik #iceland #cocktail #drinks #liquricestarfall #travel #dinner (at Matarkjallarinn)
Day One in Iceland, and there are a lot of espresso martinis on the table. #travel #cocktails #IcelandByReyka #FoodCellar #matarkjallarinn (at Matarkjallarinn)
Við félagarnir höfðum ákveðið að heimsækja einhvern af hinum fjölmörgu nýju veitingastöðum höfuðborgarinnar. Varð Matarkjallarinn fyrir valinu að þessu sinni.
Matarkjallarinn er staðsettur í kjallara Aðalstrætis 2 þar sem áður var Sjávarkjallarinn, RUB23 og Kjallarinn. Breyttur inngangur er utanverður og gefur staðnum virðulega innkomu í steinkjallara og vekur hjá manni forvitnisvott.
Staðurinn er skemmtilega innréttaður með flottri lýsingu, þægilegum stólum og hlýlegur.
Áhersla er lögð á kokteila og ýmsa drykki sem vert er að prufa. Um helgar er gefið aðeins meira í og er opið lengur þar sem boðið er upp á lifandi tónlist, en fallegur flygill er fingraður öll kvöld með dinner tónlist.
Okkur var vísað til sætis af Valtý Bergmann, einn af eigendunum, og framreiðslumeistara Matarkjallarans.
Fjöldi freistandi rétta eru í boði og var margt á matseðlinum sem er svo girnilegt að nauðsynlegt er að heimsækja veitingastaðinn oftar til að prufa sem flesta rétti.
Fyrir utan a´la carte seðil eru í boði fjórir samsettir seðlar hver öðrum girnilegri.
Fyrir valinu var leyndó matseðillinn sem samanstendur af 6 réttum eftir kenjum eldhússins.
Drykkjarpöntun var fljót afgreidd, sódavatn á línuna.
Brauð
Fljótlega kom brauð á borðið, gott og nýbakað að sjálfsögðu. Í stað smjörs kom hrærður rjómaostur bragðbættur með sítrus og graslauk. Kom það vel út.
Pönnusteikt Hörpuskel & Blómkál sólselja, heslihnetur
Fyrsti réttur kom eftir skamma stund.
Pönnusteikt hörpuskel og brennt blómkál með sólselju og heslihnetum. Hæfilega sýrt og kryddað þannig að bragðið af fiskinum naut sín til fulls.
Túnatartar & Lárpera kókoshneta, won ton, eldpipar
Næsti réttur var túnatartar og lárpera með kókoshnetu, won ton og eldpipar. Aftur var kryddun hæfileg, ekki of sterk. Mild og góð „piparsósa“.
Nauta- & Hrossacarpaccio „El Classico” klettasalat, parmesan
Nauta,- og hrossacarpaccio var hefðbundin með vel af klettasalati og rifnum parmesan, þetta bráðnaði í munni.
Tígrisrækjur Kataifi
Næst komu tígrisrækjur steiktar í Kataifi. Virkilega gott, stökkar og rétt eldaðar rækjur, ferskur og góður réttur.
Alvöru Piparsteik bjórpiparsósa, seljurót, portóbelló sveppur
Aðalrétturinn var „Alvöru piparsteik“ eins og skráð er á matseðlinum með steiktu kartöflusmælki, seljurót, portóbelló sveppi og bjórpiparsósu frábærlega góð. Kjötið var meyrt og óaðfinnanlegt. Aftur á móti fannst okkur gömlu köllunum að piparinn hefði mátt vera aðeins meiri á kjötinu, þetta er jú einu sinni piparsteik. En að sjálfsögðu er jú piparstaukur á borðinu ….
Súkkulaði „Lion Bar“
Þá var það eftirrétturinn. Súkkulaði „Lion Bar“.
Þetta var súkkulaðimús með möndlum og hindberjum, toppað með heitri karamellusósu sem hellt var yfir við borðið. Mjög bragðgóður.
Kaffi og súkkulaðiplata. Skemmtilega framborið, kaffið í gömlu góðu hitabrúsunum „ Thermos“sem margir ættu að kannast við. Cappuccino fékk að fljóta með og smakkaðist allt mjög vel.
Þjónustan var látlaus og glaðvær, aldrei of langt í þjóninn. Allir réttir vel útskýrðir með hæfilegum orðaforða. Fagmennska í fyrirrúmi.
Niðurstaða:
Miðað við okkar upplifun er engin furða hversu góða umfjöllun þessi staður hefur fengið í sumar, bæði af íslendingum og ferðamönnum.
Við gengum sælir út í nóttina.
Heimsíða staðarins er : www.matarkjallarinn.is
#Matarkjallarinn #Veitingarýni Við félagarnir höfðum ákveðið að heimsækja einhvern af hinum fjölmörgu nýju veitingastöðum höfuðborgarinnar. Varð Matarkjallarinn fyrir valinu að þessu sinni.
Matarkjallarinn opnar - Sjáðu matseðilinn hér "Sssshhhh... ekki segja frá"
#Matarkjallarinn #Restaurant #Iceland #Reykjavik #Veitingageirinn
Þessi fallegi hópur eldaði fyrir gestina á opnunarkvöldinu, fimmtudaginn 12. maí s.l.
Nýi veitingastaðurinn í veitingaflóru miðborgar Reykjavíkur Matarkjallarinn opnaði formlega á fimmtudaginn s.l., en staðurinn er staðsettur við Aðalstræti 2.
Inngangurinn er ekki tilbúinn til að byrja með og er notast við gamla innganginn þ.e. inní glerhúsinu, segir í tilkynningu á facebook síðu Matarkjallarans.
View On WordPress
Framkvæmdir í fullum gangi
Matarkjallarinn er nýr veitingastaður í veitingaflóru miðborgar Reykjavíkur, en hann er staðsettur við Aðalstræti 2.
Eigendur eru þeir Lárus Gunnar Jónasson, Gústav Axel Gunnlaugsson, Guðmundur Hansson, Valtýr Bergmann og Ari Freyr Valdimarsson.
Áætlað er að opna um mánaðarmótin apríl/maí og fyrstu vikurnar verður opið frá klukkan 17:00 á meðan að allt er að slípast til. Eftir það verður opið frá klukkan 11:30 til 23:00 alla daga og lengur um helgar, þ.e. til klukkan 03:00 á föstu-, og laugardagskvöldum.
Staðurinn tekur 80 – 100 manns í sæti og yfirkokkar verða Ari Freyr Valdimarsson og Iðunn Sigurðardóttir. Yfirþjónar verða Valtýr Bergmann og Eyrún H. Gísladóttir.
Sérstaða Matarkjallarans verður glæsilegir kokkteilar, flígillinn verður á sínum stað, lifandi músík og kokkteil stemning og smá smakk fram til klukkan 03 um helgar.
Matseldin verður í áttina að fínt brasserí & grill.
Það er enginn en annar en sjálfur matreiðslumeistarinn Lárus Gunnar Jónasson sem hannar Matarkjallarann.
Myndir: Facebook/Matarkjallarinn
#Matarkjallarinn #Iceland #Reykjavik #Restaurant #Veitingageirinn Matarkjallarinn er nýr veitingastaður í veitingaflóru miðborgar Reykjavíkur, en hann er staðsettur við Aðalstræti 2. Eigendur eru þeir Lárus Gunnar Jónasson, Gústav Axel Gunnlaugsson, Guðmundur Hansson, Valtýr Bergmann og Ari Freyr Valdimarsson.