Oooog búnar að skila! Takk fyrir okkur!

@theartofmadeline
Aqua Utopia|海の底で記憶を紡ぐ
Lint Roller? I Barely Know Her

Origami Around

pixel skylines
Claire Keane

No title available
RMH
TVSTRANGERTHINGS
taylor price
h

★
$LAYYYTER
KIROKAZE
dirt enthusiast

ellievsbear
NASA
I'd rather be in outer space 🛸
he wasn't even looking at me and he found me

Discoholic 🪩
seen from Brunei

seen from Indonesia
seen from South Africa
seen from South Africa
seen from Canada
seen from United States

seen from United States
seen from United States

seen from Singapore
seen from United States
seen from United States
seen from United States
seen from United States
seen from United States

seen from United States
seen from United States

seen from United States
seen from United States

seen from United States

seen from United States
@innovationmuch-blog
Oooog búnar að skila! Takk fyrir okkur!
KLUKKAN 22:50 Á MÁNUDEGI AÐ VINNA Í LOKASKILUM
VERKHLUTI 3
Seinasta vika fór í að klippa mynd fyrir miðlunarleiðir og vera þess á milli að ræða nýsköpun. Það er svo ótrúlega skemmtilegt að vera að vinna að einhverju svona tæknilegu - eins og að vera að taka upp og klippa myndefni. Fór að hugsa hvað ég fékk fá tækifæri til þess að gera slíkt þegar ég var yngri - það hvarflaði aldrei að mér annað en að fara í bóknám á hug-eða félagsvísindasviði. Trú mín á því að ég væri léleg í öllu “tæknilegu” var svo gríðarlega djúpstæð og maður var ekki látinn prófa neitt slíkt þegar ég var í grunn- eða menntaskóla og afsanna þar með þá trú. Nema smíðir og handiðnir sem er eiginlega allt annað. Svo lærðum við hraðritun, jú. Hversu frábært hefði verið ef kvikmyndagerð, klipping, kvikmyndatökur, forritun og annað í þeim dúr hefði verið á dagskrá þegar ég var í námi? Ég hef líka oft hugsað um myndlist - ég bjó úti á landi og vissi ekkert hvað myndlist var sem barn, hélt bara að maður þyrfti að vera góður í að teikna. Svo það hvarflaði aldrei að mér að fara í myndlistarnám. En nú sé ég eftir því. Ég hef heyrt fleiri segja svipaða sögu. Vonandi verður eitthvað á borð við Barnamenningarhús sett á laggirnar - hvort sem við gerum það eða einhver annar.
Það hefur gengið merkilega vel að setja þennan verkhluta saman. Við vorum að ræða það í hópnum hversu vel samstarfið hefur gengið og einnig hversu jákvæðar við erum orðnar gagnvart ýmsum hugtökum sem hræddu okkur áður fyrr - eins og rekstur, rekstarform, fjármögnun, þarfagreining og annað í þeim dúr. Ég er fullviss um að þessi þekking mun nýtast mér í framtíðinni og eins finnst mér ég hafa aðra sýn á nýsköpun - hver veit nema maður stofni fyrirtæki í framtíðinni. Það er að minnsta kosti ekki lengur algjörlega út í hróa hött í mínum huga - líkt og það var fyrr í haust.
FJÁRFESTAKYNNING
Gekk líka sjúklega vel! Við erum í svo miklu stuði stelpurnar.
NÝSKÖPUN - DAGUR 11
Fór til Boston í helgarferð á NBA leik. Mikil nýsköpun þar.
NÝSKÖPUN - DAGUR 10
Töluvert rætt um styrki og styrkjarumsóknir og fjármögnun. Það er ótrúlega mikil vinna sem fer í styrktarumsóknir og mín reynsla er sú að í raun eru það ekki endilega bestu verkefnin sem fá styrki heldur bestu umsóknirnar. Sem sýnir hvað þetta er ótrúlega mikilvægt. Það þyrfti að taka til í styrktarumhverfinu á Íslandi, líkt og bent var á í tímanum. Samhæfa umsóknarferlin og eyðublöðin svo að það væri einfaldara að sækja um styrki. Einnig er gríðarlega mikilvægt að þeir sem sæki um fái aðstoð og gefist tækifæri til þess að aðlaga og breyta umsóknum sínum.
Ég þekki til listamannalauna kerfisins hér á Íslandi ágætlega og það er í raun á margan hátt ágætt en á margan hátt meingallað. Fyrir það fyrsta fær umsækjandi aldrei neinskonar útskýringu eða röksemdafærslu frá þeim sem fara yfir umsóknirnar - hvort sem hann fær styrk eða ekki. Það er ekki tími til að svara öllum sem sækja um en það væri eðlilegt að færð væru rök fyrir því afhverju ákveðið var að styrkja tiltekin verkefni. Listamannalaun er verkefnasjóður en ekki styrkur til einstaklinga - ólíkt því sem margir halda. Hinsvegar, af því að svo margir sækja um en svo fáir fá styrk, þá hefur sú þróun orðið að meðalaldur þeirra rithöfunda (til dæmis) sem fá styrki hefur farið ört vaxandi undanfarinn áratug. Nú er svo komið að það er varla neitt verið að styrkja grasrótina svo rithöfundar þurfa að vinna eins og brjálæðingar meðfram listsköpuninni þangað til þeir fara að fá ritlaun, sem er oft ekki fyrr en um eða eftir fertugt. Og þá er það ansi stopul innkoma til að reiða sig á.
Þessvegna hefur verið afskaplega gagnlegt að fara í gegnum þennan kúrs. Ég drakk í mig greinar Porters (enda afar auðlæsilegar), um hvað það er sem þeir sem fara yfir umsóknir vilja sjá og hvaða mistök það eru sem menntamenn (og aðrir umsækjendur) eru helst að gera. Að skrifa of óljósan texta, vera of lengi að koma sér að málinu, ótraustvekjandi fjárhagsáætlun og of mikið af “ég eða við ætlum að...af því að okkur finnst”. Ótal fleiri mistök mætti telja upp sem nefnd voru í greininni - margt var hægt að yfirfæra yfir á listatengdar umsóknir líka. En svo er það hitt, sem Porter kemur líka inn á, að styrktarumsóknir eru að miklu leyti “numbers game” - heppni. Þú sækir um ótal marga styrki - færð endalaus nei - en svo á endanum kemur já. En afar sjaldan kannski. (Eins og í laginu: ”Segð’ ekki nei, segðu kannski kannski kannski.....”).
ANNAR VERKÞÁTTUR
Gekk ótrúlega vel - þetta samstarf hefur gengið vonum framar. Við erum allar mjög iðnar og styrkleikar okkar eru ólíkir. Það sem hefur komið mér mest á óvart er hversu skemmtilegt þetta verkefni hefur verið. Það var áhugavert að gera tilraun til þess að meta þörfina, liggja yfir skýrslum og skjölum frá hinu opinbera og senda út spurningakönnun til foreldra. Einnig var merkilega skemmtilegt að liggja yfir tölunum og setja þær inn í viðeigandi töflur, þó svo að tölvureiknihæfileikar okkar allra séu skelfilegir.
NÝSKÖPUN - DAGUR 9. FRH.
“Verkefnastjórnun er áætlun, skipulagning, eftirlit með og stýring á öllum þáttum verkefnis og stjórnun og forysta allra hlutaðeigandi aðila til að ná markmiðum verkefnisins örugglega og innan samþykktra viðmiða fyrir tíma, kostnað, umfang og frammistöðu/gæði.“
NÝSKÖPUN - DAGUR 9
Mig grunar að ég sé ekki efni í frábæran verkefnastjóra. Tekin voru ímynduð dæmi um aðstæður sem gætu komið upp við verkefnastjórnun og ég svaraði alltaf á skjön við kennarann. Gæti að minnsta kosti þurft að fara í eitthvað meðvirkniprógramm fyrst.
Það var gagnlegt að fletta í gegnum e-bókina um verkefnastjórnun, þetta virðist að öllu gríni sleppt frekar áhugavert. Eins var gott að fá dæmi um verkefnaáætlun en ég verð að viðurkenna að ég skildi ekki alveg útreikning launakostnaðar.
UPPLÝSINGAR // ÞEKKING
Upplýsingar og þekking er ekki það sama. Fólk heldur að upplýsingar séu þekking en þar er munur á. Er svolítið að spá í þessu eftir allar þessar dramatísku og traumatísku kosningar. Nú er Oxford orðabókin búin að velja “post-truth politics” sem hugtak eða orð ársins. Það virtist ekki skipta neinu máli hvaða upplýsingar lágu fyrir - það síaðist ekki inn. Kannski af því að vinstra fólki hefur mistekist að taka umræðuna. Það virkar a.m.k greinilega ekki að tryllast og öskra kvenhatarar (Bandaríkin), rasistar (Bretland/Brexit) og spilling (Ísland). Þekkingin eykst ekki við það.
“The electric light did not come from the continuous improvement of candles.”
Quote by Oren Harari, American business professor at the University of San Francisco and author
BARNAMENNINGARHÚS
Hugmyndin birtist einhvernveginn bara - við höfum allar áhuga á menningu og eigum allar börn. Samstarfið hefur líka gengið ótrúlega smurt fyrir sig og miðað við hvað ég hélt að þessi skil öll yrðu mikil ofurátök - þá hefur þetta gengið ótrúlega vel! Kannski af því að við höfum mikinn áhuga á verkefninu og það spratt upp úr okkar eigin “þörf”.
SAFFRAN
Er ekki hægt að rækta saffran (rétt eins og wasabi) hérna á Íslandi?
Einfalt að rækta: http://www.saffronbulbs.com/culture.htm
http://www.gardeningknowhow.com/edible/herbs/saffron/growing-saffron-indoors.htm
NÝSKÖPUN - DAGUR 6
Ég missti af tímanum í dag af því að ég var á spítala með le baby. Var einmitt að hugsa hvað ég væri þakklát fyrir uppfinningar eins og sýklalyf - það að fá sýkingu í bein, eins og le baby er með, var einu sinni stórmál - ólíklegt að lifa það af. Núna er barnið bara með sýklalyf í æð í viku uppi á spítala, svo fær hún lyfin áfram heima í mánuð og málið er dautt. (Ekki barnið).
Ég fór samt líka að hugsa um hvað heilbrigðisgeirinn (hér á Íslandi amk) er aftarlega á merinni þegar kemur að því að nýta sér tæknina sem er í boði. Afhverju er hægt að panta tíma á netinu í smurningu fyrir bílinn en ekki hjá lækni? Læknar handskrifa líka hjá sér alla punkta sem þeir taka og oft á tíðum finnst manni að maður sé að endurtaka sig aftur og aftur.
Tíminn var fyrsti tíminn hjá Rögnvaldi í verkefnastjórn. Ég renndi yfir glærurnar en fann að þetta var sennilega tími sem maður hefði þurft að mæta í til þess að skilja...
GLÓSUR - ÖRFÁIR PUNKTAR
upp úr greininni eftir Ardichvilli (mig langar að skrifa Arrivedercci).
Mikilvægt fyrir frumkvöðla að -
a) greina hvar eru tækifæri
b) velja réttu tækifærin
c) þróa tækifærin áfram...
* Aðferð Dubin’s við “theory building”
1) Units (concept)
2) Laws of interaction
3) Boundaries of the theory
4) Systems of the theory (conditions under which the theory is operative)
5) Propositions of the theory
6) Empirical indication
7) Hypotheses
8) Research (empirical test of hypotheses)
A blanket that gets cold at a certain time would work better than any alarm in waking me up and getting me out of bed
Live Debate Coverage Here