Á talinu: Kristófer Lárusson
Kristófer Lúðvík Albert Lárusson býr á vistinni. Við tókum hann tali og litum inn í heim vistarbúa. Kristófer er fæddur og uppalinn á Ísafirði en flutti til Danmerkur ásamt fjölskyldu sinni haustið 2009.
Kristófer ákvað að snúa aftur til Ísafjarðar nú í sumar og hefja nám við Menntaskólann á Ísafirði.
Fullt nafn: Kristófer Lúðvík Albert Lárusson.
Gælunafn: Krissi All, Krissbert Alfer, Krissi, Kriss.
Uppáhaldshljómsveit: Rage Against The Machine, Lordi og Korn.
Besti sjónvarpsþáttur: Cougar Town og er ekki bara classic að segja Friends.
Hvernig er á vistinni: Það er sultu fínt bara, ró og friður og engir foreldrar
Besta við að búa einn: Má segja þetta hérna eða? En já ætli það sé ekki að geta fengið sér einn alla daga jafnvel þótt það sé þú veist miðvikudagur.
En það versta: Maður náttúrulega er reglulega blankur og getur ekkert bara farið til mömmu og pabba og spurt um pening en reyndar fyllir amma það skarð virkilega vel.
Hver er skemmtilegastur á vistinni: Með fullri virðingu fyrir Agli Bjarna og Ævari þá verð ég að segja Slavyan. Þvílíkur meistari á ferð.
Mest óþolandi: Það er fáránlega pirrandi þegar stelpurnar kvarta undan mér þegar ég er að djamma. Þannig já, það eru stelpurnar hérna.
Hvað drekkurðu á djamminu: Ef ég þarf að kaupa sjálfur er það Slots Classic eða Breezer með mangóbragði en stundum fæ ég gefins hjá Sigurgeiri eitthvað good shit eins og Captain Morgan. Já ég svoddan mella á djamminu.
Hvenær vaknarðu á daginn: Virkum dögum upp úr hádegi svo ég nái fyrsta tíma eftir hádegi en bara þegar ég vil um helgar.
Ertu þá að ná áföngunum?: Jáá maður sýgur sig í gegnum þetta.
Vandræðalegasta augnablik: Það var þegar ég var að tala við eina eldri stelpu og hún bað bróður minn að segja mér að hætta að tala við sig. Það var frekar vandró sko.
Skilaboð til Jón Reynis: Hata skólann maður. Af hverju þurfum við að læra þetta?