Bill Viola
vídjóverk
seen from China
seen from Argentina
seen from China
seen from United States

seen from Germany

seen from United States
seen from France

seen from United Kingdom

seen from Malaysia

seen from United States
seen from United Kingdom
seen from Australia
seen from China
seen from China

seen from Latvia
seen from China
seen from Argentina

seen from France
seen from South Korea
seen from China
Bill Viola
vídjóverk
Gustav Klimt
málverk
Oskar Kokoschka
teikningar
Egon Schiele
teikningar
@liljabirgisdottir @listamenn1 #listamenn gallery #Reykjavik (at Listamenn-innrömmun Gallerí Listamenn)
Lets talk! Interview with artist Sirra Sigrún Sigurðardóttir and Erling T.V. Klingenberg
Currently exhibiting at Listamenn are the artists Sirra Sigrún Sigurðardóttir and Erling T.V. Klingenberg. At first sight they seem to be completely different artists but looking closer at their works you see they do have a lot in common. Both artist are obviously using the print medium but their way of working with it, trying to capture something for a brief moment to show us is another.
Martha Wilson at Listamenn
33. Eru frumkvöðlar skipulagðir?
Það hefur lengi loðið við þá sem eru frumkvöðlar að vera með einum eða öðrum hætti óskipulagðir. Ástæður þess eru margþættar og hefur þetta ákveðna atriði í frumkvöðlinum verið tekið fram sem eitt af einkennum og verið jafnvel rannsakað. Mín skoðun er sú að frumkvöðlar séu í raun listamenn með viðskiptavit ef ég á að einfalda þetta nokkuð gróft. Frumkvöðlar fá oft allt að 10 hugmyndir á dag og er það afrakstur sífelldra tenginga í heilabúi frumkvöðulsins milli orsaka og afleiðinga, milli tveggja ólíkra þátta eða atburða, jafnvel þriggja og milli reynsluheims og draumheims um betri heim, milli þarfar til að lagfæra og þarfar til græða pening og þar fram eftir götunum. Það verður að segjast eins og er að erfitt getur verið fyrir frumkvöðullinn að vera skipulagður þegar heilinn snýst í sífellda hringi. Það er því sínu merkilegra þegar að frumkvöðull getur og er skiplagður. Þá vil ég meina að tækifæri sé á því að sá hinn sami geti nýtt hæfileika sína til fullnustu. Oft verða slíkir frumkvöðlar ansi öflugir og geta orðið ansi efnaðir. En frumkvöðull verður að búa yfir og býr mjög oft yfir mörgum öðrum mikilsverðum hæfileikum sem nýtast honum í þeirri baráttu að koma nýjum hugmyndum á framfæri við íhaldsaman raunveruleikann og æði hægfara þröngsýnt samfélag. Hann býr oft á tíðum yfir miklum hæfileikum til að selja og skapast það oft af þeirri einföldu staðreynd að hann þarf sífellt að vera að selja hugmyndir sínar til að geta verið til. Hann hefur þarafleiðandi góða æfingu í slíku. Frumkvöðullinn hefur einnig gott auga og góða tilfinningu fyrir umhverfi sínu vegna sífelldrar rannsóknar sem hann stundar hvern einasta dag. Hann hefur oftar en ekki góða hæfileika í að skapa gott andrúmsloft í kringum sig, kynnast fólki, eiga í góðum samskiptum við fólk sem hann hefur nýlega kynnst og vera snöggur að sjá tækifæri í tengslum ef þarf. Þannig er það þekkt dæmi af mörgum frumkvöðlum að hafa verið miklar félagsverur og stundað samkvæmislífið af miklum krafti. Þannig var t.d. Richard Branson stofnanda Virgin samsteypunnar sem fékk á sig þá setningu frá skólastjóranum sem rak hann úr menntaskóla að annaðhvort yrði hann róni eða milli. Frumkvöðlar eru oft á tíðum orkumiklir og stafar það mjög oft af þeirri einföldu staðreynd að þeir hafa verið ofvirkir í æsku. Þeir hafa jafnvel sumir hverjir verið haldnir atthyglisbrest sem aftur hefur skapað þá einskæru hæfileika sem frumkvöðullinn býr yfir. Frumkvöðlar hafa margir átt erfiða æsku sem hefur gert þá mun einbeittari í sókn að nýjum tækifærum sem færa peninga í för með sér og sókn í sjálfstæði en þörfin er sterkari hjá þeim heldur en mörgum öðrum. Frumkvöðlar eru hugvitsamir í að leysa eða finna lausn á ákveðnu tilteknu vandamáli og gefast seint upp. Frumkvöðlar eru þekktir fyrir að vera þrjóskir og jafnvel einþykkir og hafa margar sögur verið sagðar af sérstæðum skoðunum eða viðhorfum í tengslum við rekstur fyrirtækisins eða framtíð verkefnisins. Þeir hafa oft hæfileikann til að sjá það sem aðrir sjá ekki vegna þess að þeir horfa á veröldina frá hlið þegar aðrir horfa beint áfram. Þeir eru þekktir fyrir að hafa farið ótroðnar slóðir því það er troðin slóð fyrir þá. Frumkvöðlar finnast af báðum kynjum og ef frumkvöðlar væru ekki til þá hefðum við ekki fyrirtæki á við Virgin, Latabæ, Apple, Ebay, Body Shop, Amazon, Össur, Kaffitár og þannig mætti lengi vel telja. Ímyndaðu þér veröldina án þessara fyrirtækja. Veröldin væri ekki söm. Ert þú einn þeirra sem dvelur með hugmynd í maganum og langar að eiga þátt í því að koma verkefni á koppinn? Hafðu samband og sjáum hvað við getum gert.