leðilega páska! Ég vona að þú sért að njóta alls þess sem gott páskafrí hefur upp á að bjóða, hvort sem það er skíðaferð, súkkulaðiát, göngutúrar, náttbuxnadagur, sundferð, lego eða… bara hvað sem er, sem gleður. Ef þú veist ekkert hvað þú átt að gera í dag en átt fullt af eggjum inni í ísskáp þá er hér uppskrift að náttúrulegum eggjalitum. Stundum gefst nefnilega ekki tími fyrir jóla- og páskaföndur fyrr en hátíðirnar bresta á og ekkert annað krefst athygli okkar. Nú er ég að aðeins að “svindla” og nota ekki uppskrift frá leikskólum. Þessar uppskriftir eru samsuða af ýmsum leiðbeiningum sem ég fann á netinu. Sum hráfnin má nota ósoðin. Það stendur í sviga hvað þarf að sjóða.
Góða skemmtun!
Eggjalitun
1. Komið eggjum fyrir í potti og hellið vatni yfir þau.
2. Bætið við einni skeið af white vinegar.
3. Bætið við hráefninu sem gefur lit. Þeim mun meira af því þeim mun sterkari litur.
4. Látið vatnið sjóða, ef þess þarf.
5. Minnkið hitann og látið standa í 15 mín.
6. Ef þú ert sátt/ur við litinn þá fjarlægir þú eggin úr blöndunni, annars lengir þú tímann.
7. Ef þú vilt mjög sterkan lit, þá fjarlægir þú eggin úr blöndunni, sýjar litinn í gegnum kaffifilter, leggur eggin aftur í blönduna og lætur standa í ísskáp yfir nótt.
Blár - Bláber, fjólublár greipsafi eða rauðkál (soðið)
Fjólublár - Rauðvín eða örlítið af soðnu rauðkálsflusi
Bleikur - Trönuber eða trönuberjasafi
Gulur - Appelsínu- eða sítrónubörkur, kamillute eða grænt te
Appelsínugulur - Chiliduft eða flus af lauk (soðið)
Rauður - Flus af rauðlauk (a.m.k. þremur, soðið), rifsber eða granateplasafi
Brúnn - Instant kaffi, sterkt kaffi eða svart te
Gulgrænn - Eplaflus af gulu epli